Lífsins tré 69 X 69 cm

Lífsins tré 69 X 69 cm
"Þegar ég málaði Lífsins tré var mér hugsað bæði til Yggdrasils og Snæfellsjökuls. Yggdrasill samkvæmt okkar Norrænu goðafræðum er í miðju heimsins og tengir saman alla heima. Eins er það Snæfellsjökull, hið heilaga fjall og inngangur að miðju jarðar. Ég ákvað að hafa þarna Birkitré sem er svo einkennandi fyrir Ísland og virðist geta vaxið og dafnað við hinar erfiðustu aðstæður og veitir okkur skjól. Það sem dregur fram tréð og jökullinn er þessi stilla á milli forgrunnar og efri hluta verksins, þar sem fínleg teikning af stráum ber okkur upp að mýkt himinsins svo það er líkt og jökullinn fljóti þar sem hann birtist upp úr mistrinu. " - Tolli
Myndin er prentuð á hágæða sýrufrían 290gr Luster ljósmyndapappír. Prentun er framkvæmd með faglegasta móti og nýjustu tækni beitt við prentverkið. Blekin hafa í sér UV vörn og við bestu aðstæður þ.e ef myndin er sett undir glampafrítt gler í vandaðan ramma, þá spannar líflengd verksins margar kynslóðir. (Athugið að verkið er ekki innrammað)
Takmarkað upplag í 50 númeruðum eintökum, árituð af listamanninum
Afhending hefst 9. maí og svo alla föstudaga þar eftir milli 14-18 á Koparsléttu 14. 162 Reykjavík.
Vertu hjartanlega velkomin
-
Lífsins tré 69 X 69 cm
75.000 kr. Add to cart -
Rökkur við Hvítárvatn 69 X 69 cm
75.000 kr. Add to cart -
Sólarupprás 69 X 69 cm
75.000 kr. Add to cart -
Eldar við Grindavík 69 X 85 cm
75.000 kr. Add to cart -
Öræfajökull 69 X 69 cm
75.000 kr. Add to cart -
Ljósið 70 X 70 cm
66.000 kr. Add to cart -
Kvöldfréttir 80 X 69 cm
66.000 kr. Add to cart -
Húsið við brúnna 70 X 70 cm
66.000 kr. Add to cart -
Lómagnúpur 70 X 70 cm
66.000 kr. Add to cart