Facebook Pixel Tracking

Rökkur við Hvítárvatn 69 X 69 cm

tolli.is

Rökkur við Hvítárvatn 69 X 69 cm

75.000 kr.

Rökkur við Hvítárvatn 69 X 69 cm

In stock

SKU: 013-1-1-3 Category:

Rökkur við Hvítárvatn 69 X 69 cm

"Hvítárvatnið er töfrum gætt og gaman að vera þarna upp við jökulinn (Langjökull) og finna fyrir kraftinum sem í honum býr. Þegar tekur að rökkva finnur maður fyrir kyrðinni og sæluhúsið kúrir við vatnið. Í verkinu dreg ég fram rauðan tón þaksins sem mótvægi við blæbrygði grátóna húmsins. Þögnin er slík að þá má nær heyra í jöklinum skríða fram og tengingin við móður náttúru verður algjör. " - Tolli

Myndin er prentuð á hágæða sýrufrían 290gr Luster ljósmyndapappír. Prentun er framkvæmd með faglegasta móti og nýjustu tækni beitt við prentverkið. Blekin hafa í sér UV vörn og við bestu aðstæður þ.e ef myndin er sett undir glampafrítt gler í vandaðan ramma, þá spannar líflengd verksins margar kynslóðir. (Athugið að verkið er ekki innrammað)

Takmarkað upplag í 50 númeruðum eintökum, árituð af listamanninum

Afhending hefst 9.maí og svo alla föstudaga þar eftir milli 14-18 á Koparsléttu 14. 162 Reykjavík.

Vertu hjartanlega velkomin