Facebook Pixel Tracking

Sólarupprás 69 X 69 cm

tolli.is

Sólarupprás 69 X 69 cm

75.000 kr.

Sólarupprás 69 X 69 cm

In stock

SKU: 013-1-1-2 Category:

Sólarupprás 69 X 69 cm

"Í verkinu sólarupprás ber að líta ljósið læðast yfir fjölli og dali í Landmannalaugum. Þetta er svæði sem er mér mjög kært og hef ég undanfarið verið að seríu sem tileinkuð er Landmannalaugum og Kerlingafjöllum. Í Sólarupprás eru fjöllin og hreyfing þeirra eru þungamiðja málverksins. Þau eru frábrugðin eldri verkum, að því
leytinu til að dýptin er fólgin í tónabreytingum og skærleika litarins í stað ljóss, skugga og þéttari flata. Fjöllin og umhverfi þeirra eru mótuð út frá lífrænum pensilstrokum þar sem teikning er megin þátturinn til að skapa þrívíð form. Litapallettan og teikningin í pensilskriftinni endurspegla fljótandi hreyfingu fjallanna: Þau renna til og bylgjast eins og leir, líkt og þau séu að brjótast upp úr djúpi undirmeðvitundarinnar."

Myndin er prentuð á hágæða sýrufrían 290gr Luster ljósmyndapappír. Prentun er framkvæmd með faglegasta móti og nýjustu tækni beitt við prentverkið. Blekin hafa í sér UV vörn og við bestu aðstæður þ.e ef myndin er sett undir glampafrítt gler í vandaðan ramma, þá spannar líflengd verksins margar kynslóðir. (Athugið að verkið er ekki innrammað)

Takmarkað upplag í 50 númeruðum eintökum, árituð af listamanninum

Afhending hefst föstudaginn 9.maí og svo þar eftir alla föstudaga milli 14-18 á Koparsléttu 14. 162 Reykjavík.

Vertu hjartanlega velkomin